Heimili forvarna og fræðslu fyrir börn, uppalendur og fólk sem starfar með börnum
Lærum samskipti, að setja og virða mörk, eflum sjálftraust barna.
-

Samtalið fræðsla ekki hræðsla
Forvarnarverkefni sem ég hef þróað frá aldamótum og er stöðugt að vaxa og breytast með samfélaginu.
Markmiðið er skýrt: að efla meðvitund og fræðslu gegn ofbeldi og vanrækslu barna.
Við kennum börnum, foreldrum og fagfólki að setja mörk, sýna virðingu og byggja heilbrigð samskipti frá leikskólaaldri og upp í fullorðinsár. -

Lausnahringurinn
Í öll skólastig, og frístundaheimilum býð ég upp á verkefni þar sem börn og starfsfólk fá rödd, læra sameiginlegt tungumál. Lausnahringurinn kennir okkur að stjórna okkur, virða mörk og finna lausnir í samskiptum. Það sem gerir verkefnið einstakt er að hver og einn leggur eitthvað til og það styrkir hópinn.
-

Samtalið heima
Foreldrar finna fyrir hraða, álagi og kröfum dagsins. Hér skapast rými til að staldra við, eiga dýpra samtal um uppeldi og fá hagnýt verkfæri til að takast á við daglegt líf fjölskyldunnar.
Samtalið við þig og um þig
Starfsfólk sem vinnur með börnum þarf líka rými til að tala um sínar áskoranir. Stundum hjálpar að fá utanaðkomandi áheyrn að hlustað sé á það sem liggur á hjarta.
Lausnir Samtalsins
-

Forvarnir
Fyrir skóla, fyrirtæki og klúbba.
Fyrir öll sem láta sig varða forvarnir gegn ofbeldi á börnum.
Farið er yfir mikilvægi þess að byrja snemma með forvarnir og efla börn að virða og setja mörk í samskiptum -

Lausna hringurinn
Fyrir öll sem vilja efla sig í að setja og virða mörk í samskiptum.
Lausnahringurinn er einstakt verkefni sem þjálfar börn strax frá 2ja ára aldri að setja og virða mörk í samskiptum.
-

Samtalið
Áheyrn og viðrun fyrir starfsfólk í leikskóla og foreldra sem vilja fá að ræða um samskipti við börn.
Fá aðstoð og ráð varðandi Lausnahringinn
Það hjálpar að tala um málið við einstakling sem þekkir til leikskólastarfsins og uppeldismála -

Lausnakrukkan skapandi námskeið
Fyrir börn, fjölskyldur, vinahópa og vinnustaði
Þátttakendur búa til sína eigin LAUSNAKRUKKU með staðhæfingum, spurningum, verkefnum og hugmyndum sem:Auka sjálfstraust
Efla samskipti
Byggja upp virðingu
Styrkja vináttu
Nánari uppýsingar í netfang
lausnahringurinn@gmail.com -

ADDA Lausna-kennari til þín
Tímabundinn stuðningur í leikskólum, hvort sem er í samverustundum, útiveru eða öðrum verkefnum.
Ég aðstoða einnig við innleiðingu Lausnahringsins með einföldum og hagnýtum lausnum fyrir daglegt starf.
Nánari uppýsingar í netfang
lausnahringurinn@gmail.com -

Samtalið heima hjá þér
Arnrún María kemur í heimsókn- á staðinn eða rafrænt.
✔ Börnin fá að kynnast Lausnahringnum
✔ Foreldrar fá hagnýt verkfæri í samskiptum og mörkum
✔ Heimsóknin styrkir tengsl og samstöðu fjölskyldunnarÍ boði bæði heima hjá ykkur og rafrænt
Lengd 90 mín